Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2007

Problem með hotmailið!!

Jæja ég opnaði heimasíðuna aftur á barnalandi þar sem það er eitthvað problem með hotmailið, ég virðist ekki geta sent mail á þá sem byðja um lykilorð! PIIIRRR!!! En allavega veit ég ekki tilhvers ég var að opna þessa síðu (allir að biðja um það en engin kíkir) hmmm... og hvað þá að skrifa í gestabók. En síðan er opin ef einhver hefur áhuga á að kíkja.

Fór til Horsens í dag á svona information mode um keisarann sem verður þann 30 júlí, og það var bara ágætt að mæta á það þó maður hefur nú ekki skilið alveg allt sem sagt var en jújú svona flest komst þó til skila.

Fréttir dagsins eru þær að ég svaf nú bara ágætlega, eða frá um klukkan 1 og alveg til 4 og sofnaði svo aftur og fór á fætur milli kl.6 og 6:30. Svo lagði ég mig aftur um kl. 8:30 og svaf frameftir morgni!! Grin Og það var sko ÆÐI!! Enda ekkert þreytt núna og tilbúin í að fara gera meira fínt hjá mér. Whistling

Jæja ég ætla að láta þetta duga í bili og bið að heilsa.

 

Kveðja Þórunn og hinir.


Búin að opna síðu á barnalandi fyrir krílið..

Já stelpan dreif í því vegna fjölda áskorana að opna síðu á barnalandi, en síðan er læst en ekki vera feimin við að biðja um lykilorð. Ástæðan fyrir því að síðan er læst er sú að ég skrifa inn svona hvernig mér líður svona síðustu daga meðgöngunar og ég vil ekki að allir eru að lesa um það.

En héðan er svona allt ágætt að frétta, strákarnir eru jú frískir einsog alltaf Smile  Hermann brósi minn hringdi í mig á miðvikudaginn og sagði mér m.a. Að þau væru búin að fá sér svona græju til að setja í sundlaugina hjá sér, svo þau geta farið í lagina á veturna og haft það gott í heitum potti, ummm... Ekkert smá notalegt. Spurning um að vera í Svíþjóð í fæðingarorlofinu Tounge  

jæja ég nenni ekki að skrifa meira í bili svo ég bið bara að heilsa.

Kossar og knús. Þórunn og co.


Í fréttum er þetta helst...

Myndir komnar inn en ég á eftir að taka myndir núna því það er smá breyting á bumbu núna því hún hefur blásið út alveg he he he. Nú talvan og netið er komið í lag hjá mér svo maður ætti að geta sett inn myndir og svoleiðis.

Helgin er búin að vera leiðinleg því ég er búin að liggja á spítala alla helgina, því ég var búin að vera með svo mikinn bjúg og svo á föstudagskvöldið fór ég að missa sjónina og fékk þvílíkan höfuðverk og dofa í andlitið og var voða skrítinn. það kom til mín læknir og skoðaði mig og tók blóðþrýsting sem var soldið hár svo hann hringdi á sjúkrahúsið í Horsens og tilkynnti komu mína því hann vildi að ég yrði rannsökuð betur. Þá kom það í ljós að ég er með hækkaða lifrartölu og lifrin starfar ekki einsog hún á að gera, svo ég fékk sömu einkenni og með meðgöngueitrun. Frown Það verður sem sagt fylgst vel með því þetta er hættulegt krílinu mínu Crying og það verður að taka barnið minnst 14 dögum fyrir áætlaðan fæðingardag.  En þar sem ég er nú þegar ákveðin keisari þá verður barnið tekið fyrr hvort eð er, en svona er þetta bara og það er bara að vona að allt fari vel en ég á ekki von á öðru því það er vel fylgst með hérna og ég á að koma aftur til rannsóknar innan 14 daga frá deginum í dag. Já þessi meðganga ætlar ekki að vara mér auðveld en ég get svo sannarlega sagt mér hvað ég fæ í staðinn og það eru ekki nema 22 dagar í það InLove

En þetta voru helstu fréttir af því sem drifið hefur á daga mína núna og ég ætla að láta þetta duga í bili og safna skemmtilegu í poka til að skrifa um næst Smile

Bið að heilsa og kossar og knús til ykkar.

Kveðja Þórunn og krílið.


Höfundur

þórunn þorleifsdóttir
þórunn þorleifsdóttir

Ég heiti Þórunn og á heima í Danmörku, ásamt eiginmanni,3 börnum og hundinum Max. Er í fæðingarorlofi þar sem ég er að fara koma með lítið kríli í heiminn þann 30 júlí :O)

Nýjustu myndir

  • júní
  • hmm
  • úff
  • Júní
  • mai

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband